Flutningaþjónusta - flutningabíll fyrir framan byggingu

Sniðið eftir þínum þörfum

Sendibílar – flutningar – þjónusta. Kjörorð okkar lýsa áherslum okkar og þeirri fjölbreyttu flutningaþjónustu sem við bjóðum upp á. Við erum hér, fyrir þig.

Við komum hreyfingu á hlutina

Húsgögn fyrir búslóðaflutninga

Vönduð og öguð vinnubrögð

Ríkulega búnir tækjum og búnaði

Mikil reynsla

Þarftu að flytja?

Þegar um flutninga fyrir einstaklinga er að ræða þá bjóðum við upp á fjögur þjónustustig:

grunnþjónusta logo

Þú færð einn mann á bíl sem hæfir verkefninu auk viðeigandi flutningatækja. Þú útvegar mannskap, t.d. vini og vandamenn til að aðstoða bílstjórann.

Þú færð tvo menn á bíl sem hæfir verkefninu auk viðeigandi flutningatækja. Þeir sjá um lestun og losun í samráði/samvinnu við þig og þína aðstoðarmenn.

Við sjáum alfarið um flutningana. Við útvegum vinnuflokk, tæki og bíla eftir þörfum. Það eina sem þú þarft að gera er að segja til um hvert og hvað á að flytja. Við sjáum um rest. 

Þú ert ekki einu sinni á staðnum. Við gerum allt meðan þú ert í vinnunni, sumarbústaðnum eða á Kanarí. Þessi flutningaþjónusta krefst meiri undirbúnings og skipulags. Markmiðið er að allt sé klárt þegar þú kemur heim.

Sækjum og flytjum hvert á land sem er

Harðduglegt starfsfólk

Sveigjanleg flutningaþjónusta

Fyrirtækjaþjónusta

Mörg fyrirtæki þurfa ekki á flutningaþjónustu að halda á hverjum degi. En þegar þörfin skapast, skiptir máli að verkefnið sé í höndum aðila sem er starfi sýnu vaxinn og traustsins verður. Hvort sem um er að ræða tilfallandi sendingar eða flutning á höfuðstöðvum fyrirtækisins er mikilvægt að hafa fagmennsku að leiðarljósi. Þar kemur Flutningaþjónustan til skjalanna!

Tímabundnar lausnir

Við útvegum starfsfólk sem vantar bara stundum. Hjá okkur starfar einungis harðduglegt fólk, laghent, úrræðagott og fljótt að komast inn í ný verkefni. Allt okkar starfsfólk þarf að sýna fram á hreint sakavottorð og góðan ökuferil. Endilega hafið samband fyrir tímabundnar lausnir.

Hagkvæmni

Markmið okkar er hagkvæmni. Ef þig vantar starfsmann tímabundið inn á lager, eða íhlaupamann í nokkra klukkutíma, hafðu þá samband við okkur. Við getum sett saman húsgögn, fært til innréttingar og stillt upp. Við þrífum, göngum frá, stillum upp og gerum það sem til fellur í sambandi við flutninga – já og meira til!

Heildarlausnir

Flutningaþjónustan getur einnig séð um heildarlausn á flutningamálum fyrirtækja.
Það færist í vöxt í íslensku viðskiptalífi að fyrirtæki kjósi að láta verkþætti sem ekki tengjast daglegum rekstri fyrirtækisins t.d. vörudreifingu frá sér og fela þau sérhæfðum fagaðilum. Hvort sem um er að ræða vörudreifingu eða að sækja aðföng, þá erum við með réttu lausnina fyrir þitt fyrirtæki. Hafðu samband og kannaðu hvað við höfum upp á að bjóða.

Ánægðir viðskiptavinir

Posted on Google Google
Edda Axelsdóttir
19 June 2026
Google star 1Google star 2Google star 3Google star 4Google star 5
Frábær þjónusta frá upphafi til enda! Ég nýtti mér fulla þjónustu við flutning á búslóðinni og allt ferlið var til fyrirmyndar. Bílarnir voru hreinir, frágangurinn tilhlýðilegur og starfsmennirnir algjörir fagmenn fram í fingurgóma. Mæli hiklaust með þeim!
Posted on Google Google
Steinar Kjartansson
12 May 2026
Google star 1Google star 2Google star 3Google star 4Google star 5
Þessir eru alveg með á hreinu hvað góð flutningaþjónusta snýst um. Mæli algerlega með þeim.
Posted on Google Google
Drífa Valdimarsdóttir
6 May 2026
Google star 1Google star 2Google star 3Google star 4Google star 5
Frábær þjónusta, mæli með.
Posted on Google Google
Halldora Larsen
27 April 2026
Google star 1Google star 2Google star 3Google star 4Google star 5
Great company, great service, professional and efficient. Owner has good communication skills and explains everything in detail if needed. Highly recommended edit: there was small damage to a corner of a wall by the elevator in our old home, but not bad enough to take away a star.
Posted on Google Google
Árni Bragason
27 April 2026
Google star 1Google star 2Google star 3Google star 4Google star 5
Geggjuð þjónusta og stóðst allt mæli hiklaust með ykkur
Posted on Google Google
Stefán Ragnarsson
27 April 2026
Google star 1Google star 2Google star 3Google star 4Google star 5
Strákarnir voru alveg frábærir, lausnamiðaðir og kurteisir. Einnig var bíllinn vel útbúinn tækjum og snyrtilegur. Mælum með Flutningaþjónustunni allan daginn þið voruð bjargvætturinn okkar. Stefán og Hulda
Posted on Google Google
Sveinbjörg Gunnarsdóttir
1 April 2026
Google star 1Google star 2Google star 3Google star 4Google star 5
Þetta gekk ótrúlega vel - við fengum tvo menn sem unnu mjög skipulega og sögðu okkur til, þannig að verkið gekk hratt og vel fyrir sig.
Posted on Google Google
Olafur Eysteinn Sigurjonsson
16 March 2026
Google star 1Google star 2Google star 3Google star 4Google star 5
Allt upp á 10 get hæglega mælt með
Posted on Google Google
Tihana Frankovic Kralj
16 March 2026
Google star 1Google star 2Google star 3Google star 4Google star 5
Amazing service and amazing team! Big thanks to Bartosz and the guys- the move was done under heavy ice conditions- looked impossible to manage- but they done it! 100%recommend!
Flutningaþjónustan logo
Síðan 2004

Flutningaþjónustan ehf. var stofnuð árið 2004 en fyrirtækið byggir á reynslu eigandans Jóns Birgissonar sem hefur starfað í flutningabransanum frá 1989. Flutningaþjónustan ehf. er traust flutningaþjónusta með fullgilt rekstrarleyfi. Hjá fyrirtækinu starfa aðeins reyndir menn sem hafa metnað til að veita afburða þjónustu.

Desjamýri
270 Mosfellsbæ
555 1100

info@flutningathjonustan.is

Flutningaþjónustan símanúmer logo